Fóbíur

Ég fann á netinu lista yfir fjöldan allan af fóbíum. Fóbíur er einhverskonar hræðslu/óþæginda fyrirbæri og þær hafa flestar eitthvað latneskt heiti eins og:  

Arachnophobia- Hræðsla við köngulær 

Demophobia- Hræðsla við mannfjölda.

Aviatophobia- Hræsla við að fljúga

Hypsiphobia- Hræðsla við hæð

Ég kíkti yfir listann og fór að spá í hvort mögulega væri einhver fóbía sem gæti átt við mig.

Bathmophobia- Hræðsla við stiga eða brattar brekkur. Já... mér er meinilla við að fara upp í stiga eða upp á stól en brött brekka á ekki við.

Thermophobia- Hræðsla við hita. Neeei..... ekki hræðsla kannski en mér líður mjög illa í hita.

Fann ekkert fleira á þessum lista sem á við mig. Get samt talið upp eins konar fóbíur t.d. allt sem blokkar eyrun eins og húfa, teppi eða sæng. Stóru, flottu eyrun mín verða að vera frjáls og ekkert má hylja þau. Þessi fóbía getur komið sér illa í snjóbyl og kulda.  Svo er það augun. Ekkert oddhvast má beinast að augunum þá svíður mig í augun. Ég á t.d. mjög erfitt með að prjóna á fjóra prjóna af því að það eru oddar útum allt.

Nokkrar fyndnar fóbíur af þessum lista: 

Acousticophobia- Hræðsla við hávaða.Datt bara einn ákveðinn í hug Wink 

Bogyphobia- Hræsla við Grýlu og Leppalúða. - What!!!!

Arachibutyrophobia- Hræðsla við að hnetusmjör festist í efri gómnum. hmmm....

Defecaloesiophobia- Hræðsla við sársaukafullar innyfla hreyfingar. - ???? Ok.....

Autodysomophobia-Hræsla við þann sem lyktar andstyggilega. andstyggilega??

Phagophobia- Hræðsla við að borða eða verða borðaður. Svolítið ólíkt en.......OK

Dextrophobia- Hræðsla við hluti hægra megin við þig.   hmm.... vertu aftast!!

Hedonophobia- Hræðsla við að líða vel.   Döööö.... frekar langsótt.

Hippopotomonstrosesquippedaliophobia- Hræðsla við löng orð.  hahahah...

Svo að lokum - Getraun - Hvað er Mono-phobia? Bjór í verðlaun Smile


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ísak Pálmason

mono-phopia...er það ekki bara hræðsla við mono upptökur:S

Ísak Pálmason, 21.11.2007 kl. 14:58

2 Smámynd: Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir

Mono-phobia gæti verið hræðsla við að missa heyrn á öðru eyra.

Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir, 21.11.2007 kl. 15:24

3 identicon

Hæ Gló :):)

Mono phobia er hræðsla við einveru, einnig hræðsla við tilhugsunina að vera einn og öryggislaus.

hvernig bjór fæ ég :):)

Tinna Ó (IP-tala skráð) 21.11.2007 kl. 15:40

4 identicon

sammála Tinnu. Hræðsla við einveru. Og þá er sterio phobia líklega hræðsla við ..

hin amman (IP-tala skráð) 21.11.2007 kl. 20:21

5 Smámynd: Ylfa Mist Helgadóttir

....fjölmenni, Amma.

Ertu búin að vera að "dúlla"þér við þetta Gló mín????

ég er með Glo-phobia... híhí

Ylfa Mist Helgadóttir, 22.11.2007 kl. 00:15

6 Smámynd: Gló Magnaða

Drullu fljótlegt Ylfa.... ég kann nefnilega á copy/paist

Rétta svarið er komið. Tinna hefur farið að gúgla. Mér finnst samt að einverufóbían eigi að heita Solo-phobia. Tinna fær bjór.

Nú vil ég fá að heyra um skrýtnar fóbíur sem fólk er með.

Gló Magnaða, 22.11.2007 kl. 08:46

7 identicon

hahaha :):)

var búin að læra þetta í skólanum einhverntímann en gúglaði til að vera sjor á að fá bjór :):) ætlaði ekki að klúðra bjór útá svona klikk

Tinna (IP-tala skráð) 22.11.2007 kl. 16:40

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þetta eru nú meiri fóbíurnar.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.11.2007 kl. 21:58

9 Smámynd: Marta

Ég er með fóbíu fyrir sturtugólfum í sundlaugum.

Marta, 25.11.2007 kl. 00:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband